mánudagur, nóvember 05, 2007

Belís heilsuvörur

Þá getur maður loks tekið gleði sína á ný....

Nýi bæklingurinn er kominn í hús og vöruúrvalið er ekki að verri endanum frekar en vanalega. Þeir sem eru farinr að velta fyrir sér jólagjafainnkaupum ættu ekki að óttast, því hjá Belís heilsuvörum er geta allir fundið eitthvað fyrir sitt hæfi.......og á viðráðnlegu verði.

Sem dæmi langar mig að nefna:

12 bómullarnærbuxur með áprentuðum blómum.



Valentínusar sett fyrir ástfangin pör. ,,Settið samanstendur af tveimur bollum, einum fyrir hana og einum fyrir hann ásamt litlum og sætum púða með setningunni I love you. Einning er fallegt kvartsúr með bleikri skífu"



Unaðargel fyrir konur sem vilja betra kynlíf. ,, Samlífið mun færa þér áður óþekktan unað og ánægju. Þetta hreina gel er með öllu hættulaust"

Gigaman stinningarlyfið. ,,Gigaman fyrir betra og unaðslegra kynlíf"




Bandex úthaldskrem fyrir karlmenn. ,,Þegar leikurinn stendur stutt jafnvel aðeins í nokkrar sekúndur er ánægjan minni. Vanlíðan og vonbrigði geta fylgt. Treystu á Bandex til að fyrirbyggja vonbrigði. Íslenskar leiðbeiningar fylgja"

Glæsilegur 3ja hæða kökudiskur.

Fallegur lampi með ilmúðara. ,,Settu lampann í samband við innstungu og hann mun lýsa rómantísku ljósi, en hann er einnig fallegur ilmúðari."

Hrífandi eau de perfume. ,,Hjartalaga, mjög elegant flaska með ferskum ávaxtailmi. Fyrir nútímakonuna."

Sindrandi brjóstnæla- eða hálsfesti-úr með kristöllum. ,,Þetta er brjóstnæla og hálsfesti saman í einstæðri og smágerðri gauksklukku. Þú getur borið þetta sem brjóstnælu og einnig sem hálsfesti."

Taska með regnhlíf og veski. ,,Nýtískuleg handtaska gerð úr djúpbláu bútasaumsleðri. Þrjú mismunandi hólf með rennilás og sérstöku hólfi fyrir regnhlíf sem fylgir með sem kaupbætir. Þú ert þessvegna alltaf tilbúinn ef það skyldi nú fara að rigna."

auk segularmbands til að bæta blóðrásina, límabandi sem límir allt, þoku og ljósvarnargleraugu og fleira og fleira og fleira.

Myndirnar eru fengnar af heimasíðu Belís heilsuvara, http://www.belis.is/, fyrir þá sem vilja skoða vöruúrvalið og e.t.v. festa kaup á þessum frábæru vörum.

kv. Helga...svífur um á bleiku skýi
....sól og stillt, en skítakuldi